Ef þú hugsar um ofangreind atriði, hverjar ættu helstu áherslur bæjarins að vera?
Gera tölulegar upplýsingar aðgengilegri fyrir íbúa, setja markmið og leiðir að markmiðum og mælaborð svo íbúar geti séð árangurinn. Hvetja íbúa til þáttöku með skipulögðum átökum í umhverfismálum.
Vera með fræðslu um leiðir fyrir íbúa til að draga úr neyslu. Stutt skemmtileg námskeið fyrir íbúa til að læra að draga úr sinni eigin neyslu og minnka þannig kolefnisspor sitt. T.d. matreiðslunámskeið úr afgöngum og betri nýtingu á matvælum, Saumanámskeið eða hugmyndavinnu til að nýta betur fatnað, viðgerðarnámskeið til að gera við smáraftæki, húsgögn og fleira - allskyns vinnustofur til að draga úr neyslu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation